


Hljóðhimnar er upplifunarrými fyrir börn og fjölskyldur á jarðhæð Hörpu – staður til að uppgötva töfraheim hljóðs og tóna. Hljóðhimnar er afmælispakki frá Hörpu til allra barna. Verkefni var unnið á 10 ára afmælisári hússins 2021 og opnaði vorið 2022.
ÞYKJÓ leiddi hönnunarferlið í samstarfi við Irma Studio ,Krakkaráð ÞYKJÓ, Hörpu, Gagarín, Vísindasmiðjuna, og Reykjavík Audio.






